
Dagana 19.–23. ágúst 2026 fór hópur starfsfólks þjóðkirkjunnar í starfsþróunarferð til Kaupmannahafnar þar sem áhersla var lögð á barna-, fjölskyldu- og æskulýðsstarf. Markmið ferðarinnar var að kynnast fjölbreyttum leiðum í kirkjustarfi, sækja nýjar hugmyndir og efla tengsl þeirra sem starfa að æskulýðsmálum innan þjóðkirkjunnar. Ferðin var farin með styrk frá landsskrifstofu Erasmus+ á Íslandi og skipulögð af Ingunni Björt Jónsdóttur, svæðisstjóra þjóðkirkjunnar á höfuðborgarsvæðinu. Alls tóku 26 þátt í ferðinni, á aldrinum 19–59 ára, frá öllum prófastsdæmum landsins. Í hópnum voru meðal annars prestar, djáknar, æskulýðsleiðtogar og svæðisstjórar þjóðkirkjunnar í æskulýðsmálum. Frá Njarðvíkursókn tóku Halla Marie og Kristín Björt þátt í ferðinni, en þær starfa við barna- og unglingastarf safnaðarins. Dagskráin var fjölbreytt og gaf þátttakendum góða innsýn í ólíkar leiðir sem farnar eru í kirkjustarfi í Danmörku. Meðal annars var heimsótt fljótandi kirkja og U-Kirken, sem leggur áherslu á starf með ungu fólki þar sem hugmyndirnar koma að stórum hluta frá unga fólkinu sjálfu. Þar er kirkjurýmið nýtt á fjölbreyttan og stundum óhefðbundinn hátt með það að markmiði að skapa aðgengilegt samfélag og lækka þröskuldinn inn í kirkjuna. Einnig var kynning á spaghettíguðsþjónustum og fjölbreyttu barna- og fjölskyldustarfi. Þar var meðal annars sýnt hvernig sögur, tónlist, hreyfing, búningar og leikur geta orðið hluti af helgihaldi og hjálpað börnum að taka virkan þátt. Þá kynntist hópurinn Biblíuævintýrum, æskulýðsstarfi í Danmörku og starfsemi íslenska safnaðarins þar í landi. Eitt af því sem stóð upp úr var hversu mikla áherslu margar kirkjurnar leggja á að hlusta á fólkið sem starfið er fyrir. Einnig var áhugavert að sjá hversu óhrædd þau eru við að prófa nýjar leiðir og nýta kirkjurýmið með ólíkum hætti. Halla Marie og Kristín Björt komu heim með margar góðar hugmyndir og mikinn innblástur sem þær geta tekið með sér inn í starfið hjá Njarðvíkursókn. Ferðin jók enn frekar tilhlökkunina fyrir komandi vetri, en barna- og unglingastarf Njarðvíkursóknar fer af stað 13. september. Það verður því spennandi að sjá hvað veturinn ber í skauti sér og hvernig nýjar hugmyndir og reynsla úr ferðinni geta nýst áfram í starfinu með börnum, ungmennum og fjölskyldum í Njarðvíkursókn.

