Kór Njarðvíkurkirkju

Kór Njarðvíkurkirkju er virkur og vaxandi kirkjukór sem sinnir reglulegu helgihaldi, stórhátíðum og tónlistarviðburðum í Njarðvíkurkirkju. Á síðustu tveimur árum hefur kórinn stækkað úr 8 í 40 félaga og er orðinn mikilvægur hluti af kirkjustarfinu í Njarðvík.

Í kórnum er lögð mikil áhersla á félagsskap og samveru, þar sem fólk með ólíkan bakgrunn syngur saman og markmiðið er að allir fái að njóta sín. Kórinn heldur reglulega metnaðarfulla tónleika þar sem efnisvalið er fjölbreytt og samanstendur af bæði trúarlegri og veraldlegri tónlist auk þess sem kórinn tekur virkan þátt í helgihaldi í kirkjum Njarðvíkursóknar.

Kórinn er einnig duglegur við að troða upp og taka þátt í því sem er í gangi í samfélaginu hverju sinni. Meðal verkefna sem kórinn hefur tekið að sér, er að syngja í Aðventugarði Reykjanesbæjar, að taka þátt í sálmafoss, margvíslegir viðburðir tengdir ljósanótt t.d. syngja undir listasýningu hjá Krumma og á stóra sviðinu með Audda og Steinda jr. Auk þess hefur kórinn sungið í útvarpsmessum, sungið á hlévangi og Nesvöllum, í Blue lagoon retreat, á jólahlaðborðum og margt fleira.

Kór Njarðvíkurkirkju syngur undir stjórn Rafns Hlíðkvists, söngstjóra.

Æfingar fara fram á miðvikudögum klukkan 19:00-21:00 og þátttaka í kórnum er gjaldfrjáls

Ef þú hefur einhverjar spurningar, hvort sem þú ert með tillögu að verkefni, vilt bóka kórinn á viðburð eða koma og syngja með okkur er hægt að hafa samband í gegnum facebook síðu kórsins eða netfangið kornjardvikurkirkju@gmail.com ,

Einnig er hægt að ná í Sólveigu formann kórsins í síma 849-5905 og Rafn Hlíðkvist söngstjóra í síma 839-9901

Stjórn kórsins skipa:

Formaður: Sólveig Rögnvaldsdóttir

Varaformaður: Bergljót Bára Theodórsdóttir

Gjaldkeri: Berglind Richardsdóttir

Ritari: Berglind Ragnarsdóttir

Meðstjórnandi: Halldóra Bergsdóttir

Varamenn stjórnar eru:

Guðrún María Þorgeirsdóttir og Rakel Jónsdóttir