Kór Njarðvíkurkirkju hefur vaxið og styrkst mikið undanfarin ár og samhliða því hefur starf kórsins tekið ýmsum breytingum. Nú hefur kórinn fengið nýtt merki sem endurspeglar þá þróun og það starf sem fram fer innan hans.
Við hönnun merkisins var lögð áhersla á nútímalegt og skýrt útlit ásamt tengingu við Njarðvíkurkirkju, tónlistina og ljósið. Form merkisins vísar í lögun kirkjunnar og nóturnar tákna tónlistina og sönginn sem eru hjartað í starfi kórsins.
Í miðju merkisins er opið rými þar sem ljósið fær að streyma inn. Sú hugmynd tengist jafnframt vortónleikum kórsins árið 2026, sem báru yfirskriftina „Leyfðu ljósi að streyma inn“. Yfirskriftin fangar vel þá hugsun sem liggur að baki merkinu.

Share This Story, Choose Your Platform!