Unglingastarfið fer frábærlega af stað! Nýja unglingastarfið okkar, sem er sérstaklega ætlað ungmennum í 9.–10. bekk, hefur farið einstaklega vel af stað og þátttakan og stemningin farið fram úr okkar björtustu vonum. Það gleður okkur mikið og því hefur verið ákveðið að fjölga hittingum fram að jólum. Stefnt er að því að hittast um það bil tvisvar í mánuði, þar sem boðið verður upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá, góðan félagsskap og notalegar samverustundir. Nýjar dagsetningar og dagskrá má sjá í auglýsingunni hér fyrir neðan.  Skrá þarf sérstaklega á hvern viðburð og upplýsingar um skráningu fylgja einnig auglýsingunni. Við hlökkum mikið til áframhaldandi starfs og fleiri góðra stunda með þessum frábæra hópi fram að jólum!

 

UNGLINGASTARF 9.–10. BEKK

Tvisvar sinnum í mánuði fram að jólum verður unglingastarf á fimmtudagskvöldum kl. 18:30 til 20:30

í safnaðarheimilinu í Innri-Njarðvík (Njarðvíkurbraut 38)

Dagskrá haustsins

  • 1.október
  • 15.október
  • 5.nóvember
  • 19.nóvember
  • 3.desember – Skautaferð ⛸️
  • 17.desember – Jólahittingur 🎄

Á hverju kvöldi verður fjölbreytt og skemmtileg dagskrá sem unglingarnir og leiðtogarnir móta saman.

Við eldum og borðum saman, förum í leiki og spjöllum,

höfum það kósí og ljúkum kvöldinu með stuttri helgistund.

💛 Samvera – matur – gleði – kósí – helgistund

Skráning

Skrá þarf sérstaklega á hvern hitting hjá Kristínu Björt

(sími: 7722993) með SMS í síðasta lagi fyrir hádegi sama dag.

Mikilvægt er að skrá tímanlega svo hægt sé að kaupa inn rétt magn af mat fyrir hópinn.

📌 Skautaferðin 3. desember verður auglýst sérstaklega síðar.

 

 

 

Share This Story, Choose Your Platform!