Það var heldur betur líf og fjör í Ytri-Njarðvíkurkirkju sunnudaginn 13. september þegar við héldum Kirkjan kallar, fjölskylduguðsþjónustu í tilefni þess að barna- og unglingastarf vetrarins er að fara af stað.

Það var einstaklega góð mæting og fullt af krökkum og fjölskyldum fylltu kirkjuna af lífi, gleði og góðri stemningu.

Sérstakir gestir dagsins komu úr Latabæ, í flutningi Leikfélags Keflavíkur, og vöktu þau mikla lukku hjá börnunum. Það var mikið fjör, gleði og þátttaka og greinilegt að bæði börn og fullorðnir skemmtu sér vel.

Við þökkum öllum kærlega fyrir komuna og fyrir að taka þátt og gera þessa stund svona skemmtilega.

Sérstakar þakkir fær Leikfélag Keflavíkur fyrir að koma til okkar og gleðja börnin með frábæru Latabæjaratriði. Takk kærlega fyrir komuna og fyrir að gera daginn enn skemmtilegri!

Við hlökkum til vetrarins og alls þess skemmtilega starfs sem fram undan er.

Share This Story, Choose Your Platform!