Njarðvíkursókn er hluti af Þjóðkirkjunni. Í Njarðvíkursókn er boðið upp á ýmsa þjónustu, þar á meðal guðsþjónustur, skírnir, brúðkaup.
Njarðvíkursókn býður uppá fjölbreytta þjónustu og samfélag í ört stækkandi bæjarfélagi. Safnaðarstarf er mikilvægur hluti af starfi kirkjunnar. Safnaðarstarf hjálpar fólki að styrkja andlega þætti lífsins, auk þess að skapa tengsl og stuðning í samfélaginu.
Markmið kirkjunnar er að vera sóknarbörnum öruggt skjól í lífsins stormum, ganga með þeim í sorg og samfagna með þeim á gleðistundum lífsins og að miðla kristinni trú.
Undir sóknina heyra Ytri-Njarðvíkurkirkja og Njarðvíkurkirkja. Auk þess er Kirkjuvogskirkja innan Njarðvíkurprestakalls og því þjónustað af prestum sóknarinnar.



