Æskulýðsfélag

Mánudaga frá kl. 19- 20:30

Æskulýðsfélag fyrir 13-15 ára (8.-10. bekk)

Safnaðarheimilið Innri-Njarðvík.

kl. 19:00 – Opið hús fyrir æskulýðsfélagið (spil, spjall og smá veitingar td. kex, djús og ávextir.)

kl. 19:30 – Byrjum stundina (biblíusaga, bæn, söngur osf.)

kl. 19:55 – Mismunandi dagskrá (leikir, föndur osf.)

kl. 20:25 – Loka stundinni

kl. 20:30 – Æskulýðsfélagið búið


Förum í ýmsa leiki, spilum og föndrum.

Við reynum að sníða dagskrána eftir óskum barnanna.

Umsjón: Halla Marie Smith æskulýðsfulltrúi, Kristín Björt Sævarsdóttir og ungleiðtogar þjóðkirkjunnar

Fermingarbörn sækja 7-10 guðsþjónustur yfir veturinn. Tvær mætingar í æskulýðsfélagi geta komið í stað einnar messumætingar.

Börnin fá í mesta lagi 3 messumætingar fyrir mætingu í æskylýðsfélag.

Leiðtogar í unglingastarfi sjá um að skrá mætingu í unglingastarfi.

Dagskrá Æskulýðsfélags Njarðvíkursóknar

Haustönn 2026 – september til desember

Birt með fyrirvara um breytingar


SEPTEMBER

14. september – Unglingamessa

Kl. 19:30 í Ytri-Njarðvíkurkirkju, Brekkustíg 13.

21. september – Hópleikir og ís

28. september – Capture the Flag

OKTÓBER

5. október – Blindsmakk

Getur þú giskað á bragðið? Við smökkum gos, nammi og ýmislegt annað með bundið fyrir augun.

8. október (fimmtudagur) – Silent Diskó

Sameiginlegt Silent Diskó æskulýðsfélaganna.

Staðsetning: Ástjarnarkirkja.

Tími: Kl. 20:00–21:45.

Þátttökugjald: 500 kr.

Boðið verður upp á rútu frá Njarðvík.

Skráning er nauðsynleg fyrirfram.

12. október – Unglingamessa

Kl. 19:30 í Ytri-Njarðvíkurkirkju, Brekkustíg 13.

19. október – Undirbúningur fyrir dúlludraugahús

26. október – Undirbúningur fyrir dúlludraugahús

Við hittumst á hefðbundnum tíma, kl. 19:00–20:30, og undirbúum dúlludraugahús. Saman sköpum við skemmtilega hrekkjavökustemningu!

Athugið: Æskulýðsfélagið starfar samkvæmt dagskrá þrátt fyrir vetrarfrí í skólum.

NÓVEMBER

2. nóvember – DIY-kvöld

Sköpunarkvöld þar sem hægt verður að búa til lyklakippur, vinabönd, perluskraut og fleira sem unglingarnir mega taka með sér heim.

Einnig verður verkefnið Jól í skókassa kynnt.

9. nóvember – Unglingamessa

Kl. 19:30 í Ytri-Njarðvíkurkirkju, Brekkustíg 13.

13.–15. nóvember (föstudagur–sunnudagur) – Unglingamót í Vatnaskógi

Sameiginlegt unglingamót með fjölbreyttri dagskrá, leikjum og skemmtilegri samveru.

Nánari upplýsingar um skráningu og fyrirkomulag verða kynntar síðar.

16. nóvember – Jól í skókassa

Við tökum þátt í verkefninu Jól í skókassa og útbúum skókassa með gjöfum.

23. nóvember – MasterChef

Matreiðslukeppni þar sem unglingunum verður skipt í lið. Hvert lið fær hráefni og reynir að útbúa besta snarlið.

30. nóvember – Jólaföndur

Notalegt jólaföndur þar sem við búum til fallegt jólaskraut og komum okkur í jólaskap.

DESEMBER

3. desember (fimmtudagur) – Skautaferð æskulýðsfélaganna

Sameiginleg skautaferð í Skautahöllina í Laugardal.

Tími: Kl. 17:00–19:00.

Boðið verður upp á pizzur.

Þátttaka er unglingunum að kostnaðarlausu.

Þátttakendur sjá sjálfir um að koma sér á staðinn.

7. desember – Heitt kakó og jólabingó

Notaleg jólastemning með heitu kakói, jólabingói og skemmtilegri samveru.

14. desember – Piparkökuskreytingar

Við skreytum piparkökur og njótum jólalegrar samveru.

21. desember – Jólakósý

Við ljúkum haustönninni með notalegri samveru, pakkaleik, tónlist, góðgæti og stuttri jólastund.

Æskulýðsmót í Vatnaskógi 13.–15. nóvember 2026

Dagana 13.–15. nóvember verður haldið æskulýðsmót í Vatnaskógi fyrir unglinga í 8.–10. bekk sem eru virkir þátttakendur í æskulýðsstarfi kirkjunnar.

Ég læt hér fylgja með auglýsingu frá Þjóðkirkjunni með nánari upplýsingum um mótið.

Skilyrði fyrir þátttöku

Til þess að geta tekið þátt í ferðinni þurfa unglingarnir að:

Hafa mætt á æskulýðsfélagsfund að minnsta kosti fimm sinnum á þessari önn.

Hafa fylgt leiðbeiningum leiðtoga á æskulýðsfélagsfundunum.

Mótsgjald

Almennt mótsgjald er 18.300 kr. á þátttakanda.

Við erum svo heppin að hafa fengið styrk til ferðarinnar og getum því lækkað gjaldið um 5.000 kr. fyrir unglinga í Njarðvíkursókn! 🥰

Mótsgjaldið verður því 13.300 kr. á þátttakanda.

Greiðsluupplýsingar

Reikningsnúmer: 0133-15-009935

Kennitala: 660169-5639

Upphæð: 13.300 kr.

Vinsamlegast setjið nafn þátttakanda sem skýringu við greiðsluna og sendið greiðslukvittun á netfangið:

halla@njardvikurkirkja.is

Upplýsingar sem þurfa að berast

Ég bið foreldra og forráðafólk að senda mér einnig eftirfarandi upplýsingar á sama netfang:

Fullt nafn barns

Kennitölu barns

Kyn barns

Símanúmer foreldris/forráðamanns

Farsímanúmer barns

Heimasímanúmer (ef við á)

Fæðuofnæmi eða fæðuóþol

Annað sem mikilvægt er að leiðtogar viti af

Upplýsingar sem þurfa að berast fyrir 5. nóvember

Being a Christian is more than just an instantaneous conversion – it is a daily process whereby you grow to be more and more like Christ.

Billy Graham

Darkness cannot drive out darkness; only light can do that. Hate cannot drive out hate; only love can do that.

Martin Luther King, Jr.

God cannot give us a happiness and peace apart from Himself, because it is not there. There is no such thing.

C. S. Lewis

Join Our Community

Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Aliquam et turpis at ligula malesuada ultricies. Duis eu tincidunt leo. Sed ultricies pellentesque imperdiet.