
Leikjanámskeið Njarðvíkursóknar fór fram dagana 15., 16., 18. og 19. júní, frá kl. 8:30–16:00. Námskeiðið var fyrir 6–8 ára börn, miðað við að börnin hefðu lokið 1. bekk. Námskeiðið gekk einstaklega vel og var virkilega gaman að fá öll þessi frábæru börn til okkar. Dagskráin var fjölbreytt og nóg um að vera alla dagana. Meðal annars fórum við í heimsókn á lögreglustöðina og bókasafnið, fórum í sund og lékum okkur í fjölbreyttum leikjum, bæði úti og inni. Einnig var boðið upp á föndur, söng og ýmis skemmtileg verkefni. Lögð var áhersla á að börnin fengju að njóta sín, efla sjálfstraust sitt og styrkja vináttu og góða samveru. Fræðsla um lífið og tilveruna út frá kristilegum gildum var einnig hluti af dagskránni. Börnin stóðu sig öll með mikilli prýði og sköpuðu frábæra stemningu þessa daga. Starfsfólk Njarðvíkursóknar þakkar kærlega fyrir skemmtilega daga og hlakkar til að bjóða aftur upp á leikjanámskeið næsta sumar.

