
Það var sannkölluð tónlistarveisla í Ytri-Njarðvíkurkirkju í kvöld þegar Kór Njarðvíkurkirkju hélt kraftmikla gospeltónleika í tilefni Ljósanætur.
Mætingin fór fram úr öllum vonum og hvert einasta sæti í kirkjunni var skipað. Svo margir mættu að ekki komust allir í sæti og var því sannarlega fullt út úr dyrum.
Stemningin var einstök frá fyrstu tónum og kórinn fyllti kirkjuna af krafti, gleði og fallegum söng.
Við erum ótrúlega þakklát öllum sem lögðu leið sína til okkar og tóku þátt í þessu frábæra kvöldi. Takk fyrir stórkostlega mætingu og yndislega stemningu!
Og ekki síst — til hamingju Kór Njarðvíkurkirkju með glæsilega tónleika!



