Miðvikudagskvöldið 3. september voru haldnir gospel tónleikar í Ytri-Njarðvíkurkirkju í tilefni Ljósanætur.
Kór Njarðvíkurkirkju ásamt hljómsveit flutti vel valdar perlur gospeltónlistar á Íslandi undir stjórn Rafns Hlíðkvist organista. Mörg af lögunum hefur gospelkóngur íslands, Óskar Einarsson, útsett og mætti hann sem heiðursgestur á tónleikana.
Ytir-Njarðvíkurkirkja var stútfull af tónleikagestum, um 270 manns lögðu leið sína í kirkjuna og má segja að það hafi ríkt sannarleg gospel gleði!
Við þökkum öllum sem komu á tónleikana


