Sunnudaginn 5. júlí 2026 komum við saman í Ytri-Njarðvíkurkirkju á notalegri kaffihúsamessu með biblíufræðslu.
Yfir kaffibolla og góðu meðlæti. Veltum við fyrir okkur orðum Jesú: „Fylgið mér.“ og hvernig við getum lesið Biblíuna með augum Jesú og leyft boðskap hans að leiða okkur í daglegu lífi.
Við þökkum sr. Helgu Kolbeinsdóttur innilega fyrir áhugaverða og uppbyggilega biblíufræðslu og Rafni Hlíðkvíst og Írisi Eysteinsdóttur fyrir fallegan tónlistarflutning sem skapaði hlýja og hugljúfa stemningu.
Það var dýrmætt að eiga þessa stund saman, njóta samfélagsins, eiga góð samtöl og styrkjast í trú og von.

Share This Story, Choose Your Platform!