Sunnudaginn 10. maí var hátíðardagur í Njarðvíkursókn þegar 140 ára vígsluafmæli Njarðvíkurkirkju var fagnað. Fjölmenni tók þátt í dagskrá dagsins og var ánægjulegt að sjá hversu margir komu saman til að fagna þessum merku tímamótum í sögu kirkjunnar og samfélagsins. Njarðvíkurkirkja á sér langa og merkilega sögu og hefur kirkjustarf verið hluti af samfélaginu í Njarðvík um aldir. Núverandi kirkja var reist á árunum 1885–1886 og hefur síðan þá skipað mikilvægan sess í sögu byggðarlagsins. Dagskrá afmælisins hófst með fræðslu Helgu Ingimundardóttur í Njarðvíkurkirkju. Þar fór Helga yfir sögu kirkjunnar og umhverfis hennar og sagði meðal annars frá fólki sem sett hefur svip sinn á Njarðvíkurkirkju og samfélagið í Innri-Njarðvík í gegnum tíðina. Síðar um daginn var hátíðarguðsþjónusta þar sem sr. Hans Guðberg Alfreðsson prófastur prédikaði. Sr. Baldur Rafn Sigurðsson sóknarprestur og sr. Brynja Vigdís Þorsteinsdóttir þjónuðu fyrir altari. Sr. Þorvaldur Karl Helgason, fyrrverandi sóknarprestur í Njarðvíkurprestakalli, tók einnig þátt í athöfninni. Kór Njarðvíkurkirkju setti hátíðlegan svip á stundina með söng undir stjórn Rafns Hlíðkvist, organista og tónlistarstjóra kirkjunnar. Að guðsþjónustunni lokinni hélt hátíðin áfram í safnaðarheimilinu þar sem gestir nutu veitinga og samveru. Kirkjunni bárust jafnframt fallegar afmælisgjafir. Kjalarnesprófastsdæmi færði kirkjunni kertastjaka og kerti að gjöf og Helga Óskarsdóttir, fyrrverandi formaður sóknarnefndar, afhenti kirkjunni verkefni sitt frá Háskóla Íslands um endurgerð Njarðvíkurkirkju. Dagurinn var bæði hátíðlegur og ánægjulegur og gaf gestum tækifæri til að rifja upp sögu Njarðvíkurkirkju, njóta samveru og fagna 140 árum frá vígslu þessa merka húss.

 

 

Share This Story, Choose Your Platform!