
Helgistund og dýrablessun í Ytri-Njarðvíkurkirkju
Sunnudaginn 9. ágúst 2026 var notaleg helgistund í Ytri-Njarðvíkurkirkju þar sem gæludýr og eigendur þeirra voru sérstaklega boðin velkomin.
Kór kirkjunnar söng undir stjórn Rafns Hlíðkvist og sr. Baldur Rafn þjónaði.
Í lok stundarinnar fengu gæludýrin blessun.
Það var sérstaklega gaman að fá fjölbreyttan hóp gæludýra í heimsókn – mús, naggrísi, ketti og hunda.
Takk öllum sem komu og áttu með okkur þessa fallegu stund!

