Loading Events

« All Events

Leikjanámskeiðið 

júní 15 @ 08:30 16:00

Njarðvíkursókn býður upp á leikjanámskeið í þriðja sinn nú í sumar 2026.

Leikjanámskeiðið fer fram dagana 15. júní til 19. júní (ATH! 17. júní er ekki námskeið). Frá kl. 8:30-16:00.

Leikjanámskeiðið er fyrir 6-8 ára börn, miðað er við að börnin hafi lokið 1 bekk.

Það verður fjölbreytt og skemmtileg dagskrá í boði. Farið í ýmsa leiðangra í nágrenninu. Boðið upp á fjölbreytta inni og útileiki, íþróttir, föndur, söng og ýmsar stöðvar í frjálsu vali svo fátt eitt sé nefnt. Markmið okkar er að efla sjálfstraust barnanna og valdefla í gegnum leik og fræðslu, og stuðla að vináttu og kærleika.

Á hverjum degi munum við hafa fræðslu um lífið og tilveruna út frá kristilegum gildum.

Þátttakendur koma með eigið nesti alla dagana, það verða þrjár nestistundir yfir daginn.

Gott að börnin hafi með sér merktan vatnsbrúsa, bakpoka og séu klædd eftir veðri.

Boðið verður upp á pylsu, djús og íspartý í hádeginu á lokadegi námskeiðsins.

Þátttökugjaldið er greitt á sama tíma og barnið er skráð á námskeiðið.

Skráning er gild þegar greiðsla hefur borist. 15.000 kr á barn og veittur er systkinaafsláttur; 50% með öðru barni.

Lagt inn á bankareikning kirkjunnar: 0133-15-009935 / kt 6601695639. Sendið kvittun á halla@njardvikurkirkja.is

Tveir starfsmenn halda utan um leikjanámskeið. Halla Marie Smith tómstundafræðingur og æskulýðsfulltrúi í Njarðvíkursókn.

Kristín Björt Sævarsdóttir kennaranemi og sjúkralið. Auk þess verða ungleiðtogar með á námskeiðinu.

Njarðvíkurbraut 36
Reykjanesbær, 260 Iceland
+ Google Map
4215013.
Skoða vefsíðu

Share This Post, Choose Your Platform!

Go to Top