Loading Events

« All Events

Unglingastarf fyrir 9.–10. bekk

október 15 @ 18:30 – 20:30

Unglingastarf fyrir 9.–10. bekk

Unglingastarf fyrir 9.–10. bekk í Njarðvíkursókn

Njarðvíkursókn býður upp á skemmtilegt og fjölbreytt unglingastarf fyrir ungmenni í 9.–10. bekk.

Starfið hefur farið einstaklega vel af stað og þátttakan farið fram úr okkar björtustu vonum. Því hefur verið ákveðið að fjölga hittingum og hittast tvisvar sinnum í mánuði fram að jólum.

Markmið starfsins er að skapa notalegan og öruggan vettvang þar sem unglingar geta hist, eignast nýja vini, styrkt vináttubönd og átt góðar stundir saman.

Dagskráin er mótuð í sameiningu af unglingunum og leiðtogunum. Á hittingunum eldum við og borðum saman, förum í leiki, spjöllum og njótum samverunnar. Kvöldunum lýkur með stuttri helgistund þar sem gefst tækifæri til að staldra við, ræða lífið og trúna og eiga rólega stund saman.

Samvera – matur – gleði – kósí – helgistund

Staðsetning og tími

Safnaðarheimilið í Innri-Njarðvík, Njarðvíkurbraut 38.

Fimmtudagskvöld kl. 18:30–20:30, að jafnaði tvisvar í mánuði.

15.október

Skrá þarf sérstaklega á hvern hitting með því að senda SMS til Kristínar Bjartar í síma 772 2993.

Skráning þarf að berast í síðasta lagi fyrir hádegi sama dag og hittingurinn fer fram, svo hægt sé að kaupa inn rétt magn af mat fyrir hópinn.

Upplýsingar fyrir foreldra og forráðafólk

Við höfum stofnað sérstakan Facebook-hóp fyrir foreldra og forráðafólk unglinga í starfinu.

Foreldrar og forráðafólk – Unglingastarf í Njarðvíkursókn

Þar birtum við upplýsingar um dagskrá, skráningar, viðburði og annað sem tengist starfinu.

Við hlökkum til að eiga áfram góðar og skemmtilegar stundir með unglingunum! 💛

Njarðvíkurbraut 36
Reykjanesbær, 260 Iceland
+ Google Map
4215013.
Skoða vefsíðu

Go to Top