DÚLLUDRAUGAHÚS Á HREKKJAVÖKU!
október 31 @ 17:00 – 20:00
![]()
DÚLLUDRAUGAHÚS Á HREKKJAVÖKU! ![]()
![]()
Laugardaginn 31. október, kl. 17:00–20:00, opnum við Dúlludraugahúsið í safnaðarheimilinu í Innri-Njarðvík
Þetta er í þriðja sinn sem barna- og unglingastarf Njarðvíkursóknar býður upp á Dúlludraugahús í tilefni hrekkjavökunnar. ![]()
Dúlludraugahúsið er sérstaklega hugsað fyrir yngstu börnin og er því ekki ógnvekjandi draugahús, heldur skemmtilegur og notalegur staður þar sem ýmislegt verður í boði fyrir börnin.
Allir eru hjartanlega velkomnir! Hvort sem þið eruð á ferðinni að sníkja nammi eða langar einfaldlega að kíkja við og njóta samverunnar. Ungir sem aldnir eru velkomnir að líta inn!
Við hvetjum jafnt unga sem aldna til að mæta í búningum og taka þátt í hrekkjavökugleðinni!
Safnaðarheimilið í Innri-Njarðvík, Njarðvíkurbraut 38
Laugardaginn 31. október, kl. 17:00–20:00
Hlökkum til að sjá ykkur!

