Kirkjan kallar – fjölskylduguðsþjónusta og upphaf barnastarfsins
september 13 @ 17:00 – 18:00

Kirkjan kallar – fjölskylduguðsþjónusta og upphaf barnastarfsins
Sunnudaginn 13. september kl. 17:00 verður fjölskylduguðsþjónustan Kirkjan kallar í Ytri-Njarðvíkurkirkju. Með henni fögnum við því að barna- og unglingastarf kirkjunnar er að hefjast á ný eftir sumarfrí.
Byrjað verður á stuttri og notalegri helgistund og við kynnum það fjölbreytta barna- og unglingastarf sem verður í boði í vetur.
Leikfélag Keflavíkur kemur í heimsókn með skemmtilegt Latabæjar-atriði og verður með sprell fyrir börn og fullorðna.
Fleira skemmtilegt og óvænt verður í boði á staðnum.

Öll fjölskyldan hjartanlega velkomin!
