Loading Events

« All Events

Ungbarnanudd – kennsla í Krílakrútt

maí 5 @ 10:30 12:00

Krílakrútt (Foreldramorgnar) á þriðjudögum
í safnaðarheimilinu Innri Njarðvík. Fyrir ung börn sem eru ekki byrjuð á leikskóla og forráðamenn þeirra.

Hrönn Guðjónsdóttir ungbarnanudd kennari, heilsunuddari og nálastungufræðingur kemur þriðjudaginn 5. maí 2026 kl. 10.30 – 12:00.

Hún verður með fræðslu um ungbarnanudd og kennir foreldrum nokkrar nuddstrokur. Foreldrar þurfa að koma með þykkt mjúkt handklæði til þess að hafa undir barninu í nuddinu. Hrönn kemur með nuddolíur til afnota en ef þú átt góða ungbarnanudd olíu þá máttu gjarnan taka hana með, einnig verður hún með olíur til sölu á kr. 1500. Þú færð kennslugögn með þér heim um nuddstrokurnar sem þú lærir. Nánari upplýsingar um kosti ungbarnanudds eru á heimasíðunni [https://www.nalarognudd.is/ungbarnanudd](https://www.nalarognudd.is/ungbarnanudd) og svo er um að gera að fylgjast með á facebook og Instagram: Ungbarnanudd.is

Njarðvíkurbraut 36
Reykjanesbær, 260 Iceland
+ Google Map
4215013.
Skoða vefsíðu

Share This Post, Choose Your Platform!

Go to Top