Alþjóðlegur minningardagur fórnarlamba umferðarslysa
nóvember 16, 2025 @ 13:40 – 15:00

Alþjóðlegur minningardagur fórnarlamba umferðarslysa verður haldinn víðsvegar um landið þann 16. nóvember næstkomandi kl 14:00.
Auk þess að vera minningardagur hefur hér á landi skapast sú venja að tileinka daginn umfjöllun og forvörnum tiltekins áhættuþáttar sem valdið hefur banaslysum. Nú í ár er það notkun eins mikilvægasta öryggisbúnaðar bifreiða – öryggisbelta. Öryggisbelti minnka líkur á dauðsfalli í fólksbílum um allt að 45%. Koma hefði mátt í veg fyrir fjölda banaslysa og alvarlegra slysa ef öryggisbelti hefðu verið notuð.
Dagskrá:
13:40 Þyrla Landhelgisgæslunnar lendir við Ytri-Njarðvíkurkirkju
13:45 til 13:55 Þátttakendur safnast saman í kringum þyrlu og ökutæki viðbragðsaðila og hópmynd tekin.
14:00 Kvennakór Suðurnesja flytur lagið „When i think of angels“ inni í kirkjunni
14:05 Minningarathöfn sett – séra Helga Kolbeinsdóttir og ræðumaður munu fara með nokkur orð
Öllum boðið í kaffi og kleinur í safnaðarheimili Ytri Njarðvíkurkirkju að athöfn lokinni

