BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Njarðvíkurkirkja - ECPv6.15.18//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://njardvikurkirkja.is
X-WR-CALDESC:Events for Njarðvíkurkirkja
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20240101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251017T143000
DTEND;TZID=UTC:20251017T150000
DTSTAMP:20260418T030725
CREATED:20150803T171442Z
LAST-MODIFIED:20251017T132337Z
UID:279-1760711400-1760713200@njardvikurkirkja.is
SUMMARY:Vatnaskógur
DESCRIPTION:Fermingarferðalag í Vatnaskóg 22.- 24.október 2025 \nGert er ráð fyrir öllum fermingarbörnum í Vatnaskógarferðina þar sem hún er stór liður  fermingarfræðslunnar.Ekki þarf að skrá sérstaklega í ferðina\, greiðsla Vatnaskógsgjalds jafngildir skráningu.Foreldrar/forráðafólk er beðið að senda tölvupóst á prestana ef börnin hyggjast ekki fara í Vatnaskóg.Skólarnir fá tilkynningu um ferðina en það er í höndum foreldra/forráðafólks að biðja um leyfi frá skóla fyrir börn sín.Heimsókn í Vatnaskóg skipar sérstakan sess í fræðslunni en leitun er að skemmtilegri stað til að dvelja á.Aðstaðan á staðnum er með besta móti með íþróttasal auk ágætra svefnskála og útisvæði sem býður upp á leik og fræðslustundir bæði innandyra og utan.Lagt er af stað frá Ytri-Njarðvíkurkirkju miðvikudaginn 22.október\, tímasetning auglýst síðarDvölin stendur yfir í tvo sólarhringa og er komið heim föstudaginn 24.október um kl.14.30-15.00\, tilkynnt á facebook hóp þegar lagt er af stað heim frá Vatnaskógi.Börnin taki með sér : \n\nSvefnpoka eða sæng\, kodda og lak\nHlý föt fyrir útiveru (regnföt og stígvél\, hlýfðarfatnað)\nFöt til skiptanna (nægir sokkar)\nÍþróttaföt (innanhússkór ef til eru)\nNáttföt\nTannbursta\, tannkrem og sápu\n\nEkki er leyfilegt að taka með síma eða tölvur.Ef fermingarbörnin óska eftir að hringja í heim þá hringja þau úr símum prestanna.Ekki er tekin ábyrgð á verðmætum þessum séu þau með í farangri.Auk þess er ekki leyfilegt að taka með gos\, orkudrykki\, sælgæti eða rafrettur.Gjaldið í Vatnaskóg er 18.000 en upphæðin nemur 29.000 ef foreldrar/forráðafólk eru utan Þjóðkirkju.Kröfur eru sendar í heimabanka á það foreldri sem er skráð sem „foreldri 1“ við skráningu í fermingarfræðslu.Ef börnin taka inn lyf\, þá skulu þau að berast prestunum í sérmerktum umbúðum með nafni barns.Búi barn við sérþarfir af einhverjum toga er afar mikilvægt að þær upplýsingar berist prestum. Sama á við um aðrar upplýsingar sem talið er mikilvægt að prestar séu upplýstir um. \nSr. Baldur – baldur@njardvikurkirkja.isSr. Brynja Vigdís – brynja@njardvikurkirkja.isSr. Helga – helga@njardvikurkirkja.is \n\n\n\n\n\n\n\n\nHér fyrir neðan eru tillögur að nauðsynlegum farangri: \n\n\n\nSvefnpoki eða sæng\, lak og koddi.\nEitt sett af fötum til skiptanna (nærföt\, sokkar\, buxur\, bolur\, peysa).\nHlý peysa vettlingar\, trefill og húfa.\nVind- og vatnsheldur jakki eða úlpa.\, stígvél\, hlýir sokkar og inniskór.\nÍþróttafatnaður og inniíþróttaskór.\nTannbursti\, tannkrem og handklæði.\nATH ekki borgar sig að taka með verðmæt tæki. Þau gætu skemmst og Vatnaskógur tekur enga ábyrgð á því. Það sama gildir um síma.\nOrkudrykkir eru stranglega bannaðir.\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n \n\n​Gullna reglan \n“Allt sem þér viljið\, að aðrir menn gjöri yður\, það skuluð þér og þeim gjöra” Matt 7:12. \n\n\n\n\n \n\n\n\n\nUmgengnisreglur í Vatnaskógi Allir eiga að njóta dvalarinnar Við leggjum okkur fram um að vera góðir félagar og sýnum tillitssemi í samskiptum. Þeir sem vísvitandi reyna að eyðileggja dvölina fyrir öðrum eru sendir heim. Allir taka þátt Allir þátttakendur taka þátt í öllum dagskrárliðum námskeiðsins nema annað sé tekið fram. Allir ganga vel um. Við göngum vel um húsnæði og eigur Vatnaskógar. Sá sem vísvitandi veldur tjóni þarf að bæta það. Óheimilt er að fara inn og út um glugga. Bátarnir Bátar eru lánaðir ef veður leyfir og um þá gilda reglur sem kynntar eru á staðnum.
URL:https://njardvikurkirkja.is/event/vatnaskogur/
LOCATION:Ytri-Njarðvíkurkirkja\, Brekkustíg 13\, Reykjanesbær\, 260\, Iceland
CATEGORIES:Community
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://njardvikurkirkja.is/wp-content/uploads/2025/03/20241020_165431-scaled.jpg
ORGANIZER;CN="Njar%C3%B0v%C3%ADkurs%C3%B3kn":MAILTO:skrifstofa@njardvikurkirkja.is
END:VEVENT
END:VCALENDAR